Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn



Fréttir

Stál og stuð

Málmiðnaðarmenn hjá Marel
Málmiðnaðarmenn og Rafvirkjar hjá Marel

Við leitum að áhugasömum og hæfileikaríkum iðnaðarmönnum.  Veitum góða starfsþjálfun og vekjum athygli á að störfin henta jafnt konum sem körlum.

Málmiðnaðarmenn

Málmiðnaðarmenn vinna við smíði úr ryðfríu stáli, samsetningu og frágang tækja og búnaðar. Við leitum að áhugasömum og hæfileikaríkum málmiðnaðarmönnum og veitum þjálfun í smíði samkvæmt gæðakröfum Marel.

Rafvirkjar

Rafvirkjar sinna fjölbreytilegum og krefjandi verkefnum við frágang rafbúnaðar fyrir framleiðsluvörur Marel. Þeir sjá einnig um stillingu og prófun tækja og búnaðar.

Við bjóðum upp á snyrtilegt og öruggt vinnuumhverfi, gott mötuneyti og barnaherbergi. Verkefnin eru fjölbreytt, vinnutíminn sveigjanlegur og sjálfstæð vinnubrögð í fyrirrúmi. Félagslíf er virkt, þökk sé öflugu starfsmannafélagi. Starfsmenn hafa aðgang að þremur sumarhúsum og mjög góðri íþróttaaðstöðu, þ.á.m. tveimur íþróttasölum, tækjasal, Boot Camp og öðrum æfinga hópum.

Hvað segir starfsfólkið?

  • „Okkur er treyst til að gera hlutina”
  • „Þú færð ekki betri vinnuaðstöðu”
  • „Ég nota íþróttaaðstöðuna mikið”
  • „Góður starfsandi og góðir vinnufélagar”


Í framleiðslu Marel hf er unnið í sellum eða litlum, sjálfstæðum liðum. Sellan er samábyrg fyrir að uppfylla kröfur og væntingar viðskiptavina um gæði vöru, pökkun og útskipun búnaðar á afhendingardegi. Í sellunni er lögð er áhersla á að fólk fái að vinna sjálfstætt og að því sé treyst fyrir sínu vinnusviði. Góð samvinna og liðsandi skiptir jafnframt miklu máli.


Vinsamlegast sækið um á www.marel.com/jobs
Umsóknarfrestur er til 29. júní nk.

Nánari upplýsingar um störfin veita:

Axel Jóhannsson, axel.johannssonmarel.com og
Björn Pálsson, bjorn.palssonmarel.com

FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of 60 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0