Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

22.09.2011

Nýtt vinnslukerfi frá Marel á leið til Pacific Andes í Kína

Markar skref í átt að fullri sjálfvirkni hjá stærstu hvítfiskvinnslustöð Kína

Pacific Andes logoMarel hefur skrifað undir samning við kínverska fiskvinnslufyrirtækið Pacific Andes um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á nýju vinnslukerfi fyrir hvítfisk. Verður línan sett upp í vinnslustöð fyrirtækisins í Qingdao.

Kerfið er byggt á nýrri hönnun og er leitt af Marel í samvinnu við Skagann á Akranesi og 3X Technology. Kerfið spannar meðal annars uppþíðingu, meðhöndlun fiskikerja, kælingu, flokkun og snyrtingu og uppfyllir hæstu kröfur um gæðaeftirlit og rekjanleika. 

„Þetta er fyrsta uppsetning á nýrri flæðilínu sem er hönnuð til að hámarka sjálfvirkni í afkastamiklum vinnslustöðvum á hvítfiski eins og Alaska ufsa og eldishvítfiski eins og tilapia og pangasius,“ útskýrir Kristmann Kristmannsson, sérfræðingur í fiskiðnaðarsetri Marel.

„Náið samstarf Marel við Skagann og 3X Technology hefur gert okkur kleift að samþætta sérþekkingu þessara fyrirtækja og afhenda heildarlausn sem uppfyllir ströngustu kröfur viðskiptavinarins. Væntanlegur ávinningur fyrir Pacific Andes felst meðal annars í auknum gæðum, afköstum, lægri framleiðslukostnaði, hraðara gegnumstreymi og markvissari stjórnun á hitastigi vinnslunnar, sem dregur úr hættunni á bakteríusýkingum og gerir fyrirtækinu kleift  að keppa á mörkuðum eins og í Ameríku og Evrópu. Þar að auki bætir línan vinnuaðstöðu starfsfólks verulega,“ segir Kristmann.

„Marel hefur markvisst verið að byggja upp sterkt teymi í Kína á undanförnum árum og hefur einkum lagt áherslu á hvítfisk í norðurhluta landsins og eldisfisktegundir eins og tilapia í suðurhlutanum. Þessi samningur markar tímamót í þeirri vinnu og við erum virkilega ánægð með að vera að vinna að svo spennandi verkefni með fyrirtæki á borð við Pacific Andes, sem er eitt af allra stærstu fiskvinnslufyrirækjum heims,“ segir Kristmann að lokum.

Fiskvinnsla í Kína hefur hingað til byggt að verulegu leyti á mannafli. Meðal fiskvinnslufyrirtæki í Kína er með 4.000-12.000 manns í vinnu. En nú þegar hagkerfið er í hröðum vexti stendur greinin frammi fyrir aukinni samkeppni um vinnuafl.

Uppsetningin í Qingdao er fyrsta skrefið í átt að fullri vélvæðingu og sjálfvirkni fyrir stærstu hvítfiskvinnslustöð Kína. Pacific Andes hefur þegar kynnt áform um að uppfæra búnaðinn í öðrum vinnslustöðvum fyrirtækisins með svipuðum lausnum frá Marel ef línan í Qingdao reynist vel.

Marel í Kína (á ensku)

FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0