Fréttir
Marel veitir nemendum Hofsstaðaskóla viðurkenningu í nýsköpunarkeppni
Við útskrift nemenda í Hofsstaðaskóla nýverið veitti Marel nokkrum þeirra verðlaun í nýsköpunar- og lampasamkeppni skólans. Á hverju ári hefur hluti af smíða- og nýsköpunarkennslu skólans falist í því að efna til samkeppni um bestu hugmyndirnar í sköpunarsmiðju 5. bekkjar og hönnun lampa úr endurunnu efni í 6. bekk.
Við útskriftarathöfn föstudaginn 8. júní fengu þeir nemendur sem áttu bestu hugmyndirnar sem og lampahönnunina afhenta verðlaunagripi og veglegar myndavélar frá Marel. Það var Nótt Thorberg, markaðsstjóri Marel á Íslandi, sem afhenti verðlaunin fyrir hönd fyrirtækisins: „Marel vill leggja sitt af mörkum þegar kemur að kennslu á sviði raungreina og náttúruvísinda. Við teljum mikilvægt fyrir framtíð fyrirtækisins og landsins að tækni- og iðngreinar séu öflugar og framsæknar.“
Í gildi er samstarfssamningur milli Marel og Garðabæjar um eflingu nýsköpunar, vísinda og raungreina í leik- og grunnskólum Garðabæjar. Marel hefur um alllangt skeið lagt metnað í að rækta hugmyndaauðgi barna og unglinga, sem og þeirra sem eldri eru. Á hverju ári veitir fyrirtækið fjölbreyttum verkefnum á sviðum nýsköpunar og menntunar í verk- og raungreinum brautargengi.

Mynd: Verðlaunahafar í Nýsköpunarkeppninni ásamt Sædísi Arndal kennara í Hofsstaðaskóla og Nótt Thorberg frá Marel.


