Fréttir
Marel styður við leikskólana í Garðabæ
Marel afhenti leikskólunum í Garðabæ gjöf í dag til eflingar kennslu á sviði raungreina og náttúruvísinda. Leikskólarnir níu sem starfræktir eru í Garðabæ fengu hver um sig afhenta víðsjá og pakka með ýmsum öðrum kennslubúnaði.
„Við vonum að þið hafið gaman af þessum búnaði og getið notað hann til að æfa ykkur að vera vísindamenn,“ sagði Sigsteinn P. Grétarsson, forstjóri Marel ehf. á Íslandi, þegar hann ávarpaði börnin. „Vonandi vilja einhver ykkar svo koma og vinna hjá okkur í framtíðinni.“
Gunnar Einarsson bæjarstjóri, leikskólastjórarnir níu í Garðabæ og hópur leikskólabarna veittu gjöfinni viðtöku á leikskólanum Lundabóli. „Ég þakka innilega fyrir þessa sérstöku gjöf og þann hug sem býr að baki, um að stuðla að menntun þessa unga fólks ,“ sagði Gunnar.
Hópur barna á Lundabóli söng fyrir viðstadda. Þá mætti Ævar vísindamaður úr Stundinni okkar á staðinn og framkvæmdi nokkrar skrautlegar tilraunir sem vöktu óskipta athygli barnanna. Marel styrkir einmitt gerð þáttanna um Ævar.
Í undirbúningi er samstarfssamningur milli Marel og Garðabæjar um eflingu nýsköpunar, vísinda og raungreina í leik- og grunnskólum Garðabæjar. Marel hefur um alllangt skeið lagt metnað sinn í að rækta hugmyndaauðgi barna og unglinga, sem og þeirra sem eldri eru. Á hverju ári veitir fyrirtækið fjölbreyttum verkefnum á sviðum nýsköpunar og menntunar í verk- og raungreinum brautargengi.

