Fréttir
Afskurður minnkaði um helming
Eftir að Marel festi kaup á nokkrum framúrskarandi fyrirtækjum á undanförnum árum hefur vöruframboð fyrirtækisins aukist verulega.
Marel býður nú m.a. upp á besta tækjabúnað sem völ er á fyrir frekari vinnslu, undir merkjum Townsend Further Processing. Townsend er eitt virtasta vörumerkið í greininni, einkum þegar kemur að búnaði til að móta og hjúpa hráefni – hvort sem um er að ræða fisk, kjúkling eða kjöt – sem og í eldunarbúnaði og pylsugerðarkerfum.
Marel státar nú einnig af Townsend skinner, tæki sem sker húð og himnur af kjöti af mikilli nákvæmni þannig að ekkert af verðmætu hráefninu fer til spillis. Þegar Ray Townsend fann ‚skinnerinn‘upp í lok seinni heimsstyrjaldar í Bandaríkjunum umbylti það meðhöndlun á kjöti á þessu sviði. Tækið hefur verið í stöðugri þróun síðan og nýjustu módelin byggja á þekkingu og reynslu sem safnast hafa upp á meira en 60 árum. Og það leynir sér ekki.
Stórbætt nýting
Esja kjötvinnsla, sem er með aðsetur í Dugguvogi í Reykjavík, hefur aukið áhersluna á vélvæðingu á síðustu árum og keypti m.a. Townsend skinner frá Marel á síðasta ári. Tækið hefur skilað sér í stórbættri nýtingu í vinnslu á svína- og nautakjöti.
„Í svínakjöti hefur afskurður minnkað um 50% eftir að við fengum skinnerinn, sem hefur reynst okkur mjög vel,“ segir Vilbergur Flóvents Sverrisson, framleiðslustjóri Esju. „Tækið sker bara himnuna af en áður fyrr, þegar þetta var gert í höndunum, fór alltaf töluvert af kjöti með. Þetta skiptir verulegu máli þegar um er að ræða vöðva sem kosta frá kr. 1.500 uppí kr. 2.500 á kílóið þannig að tækið borgar sig upp á skömmum tíma.“
Vélvæðing og aukin sjálfvirkni hafa skipt gríðarlegu máli fyrir kjötvinnslu á Íslandi, að mati Vilbergs. „Vélvæðing gerir það að verkum að hraðinn er orðinn miklu meiri og nákvæmnin líka, sem til lengri tíma litið skila sér í lægra verði. Gæðin aukast að sama skapi því vélarnar framkvæma hlutina yfirleitt eins á meðan mannshöndin getur verið misjöfn.“
Markaðurinn biður um fullvinnslu
Esja þjónar fyrst og fremst veitingahúsum og mötuneytum í skólum og stofnunum. Fyrirtækið er með fullvinnslu og eldhús í sér húsnæði þar sem það framleiðir m.a. tilbúna rétti, auk þess að undirbúa og forsteikja mat fyrir stór mötuneyti.
„Ég held að markaðurinn komi til með að þróast áfram í þessa átt og að fullvinnsla á matvælum verður almennt meiri. Það er meiri hraði í þjóðfélaginu og markaðurinn er að biðja um það. En gæðin þurfa jafnframt að vera í lagi.“
Esja flutti í núverandi 1.000 m2 húsnæði í Dugguvogi fyrir um áratug og er búið að sprengja það utan af sér. Fyrirtækið hyggur á flutning í stærra húsnæði á næsta ári og þá mun tækifæri gefast til að bæta ferla og auka sjálfvirkni enn frekar. „Það er markvisst átak hjá okkur að fækka handtökum í vinnslunni enda verður sífellt erfiðara að finna faglært starfsfólk,“ segir Vilbergur að lokum.


