Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn



Fréttir

Afkoma á öðrum ársfjórðungi 2010

Fylgigögn:

Fréttatilkynning Reikningar (á ensku) Kynning (á ensku) Útsending frá fundi

Sterk pantanastaða og góð afkoma

Marel Food Systems Logo

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi 2010 námu 136,1 milljónum evra, sem er 26,9% aukning miðað við tekjur af kjarnastarfsemi á sama tímabili fyrir ári [Q2 2009: 107,2 milljónir evra]. Aukningin nemur 3,1% samanborið við heildartekjur [Q2 2009: 132,0 milljónir evra].
  • EBITDA, leiðrétt fyrir einskiptiskostnaði, var 21,1 milljónir evra, sem er 15.5% af tekjum [Q2 2009: 12,1 milljónir evra af kjarnastarfsemi]. Heildar EBITDA var 13,6 milljónir evra, sem er 10% af veltu [Q2 2009: 28,0 milljónir evra].
  • EBIT, leiðrétt fyrir einskiptiskostnaði, var 15,1 milljónir, sem er 11,1% af tekjum [Q2 2009: 6,5 milljónir evra af kjarnastarfsemi]. Heildar EBIT var 7,6 milljónir evra, eða 5,6% af tekjum [Q2 2009: 21,6 milljónir evra].
  • Einskiptiskostnaður vegna greiðslna tengdum lífeyrissjóði Stork, að upphæð 7,6 milljónir evra, er innifalinn í samstæðureikningi fyrir annan ársfjórðung 2010.
  • Hagnaður af heildarstarfsemi eftir skatta var 0,1 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2010 [Q2 2009: 17,3 milljónir evra].
  • Sjóðstreymi er sterkt og nettó vaxtaberandi skuldir eru 284,1 milljónir evra í lok annars ársfjórðungs 2010 [Q2 2009: 349,4 milljónir evra].
  • Pantanabók styrkist áfram í takt við batnandi markaðsaðstæður og er 125,3 milljónir evra í lok fjórðungsins [Q2 2009: 76,1 milljónir evra].

Ársfjórðungurinn var góður hjá Marel. Tekjur af kjarnastarfsemi námu 136,1 milljónum evra, sem er 5,6% aukning samanborið við ársfjórðunginn á undan og 26,9% aukning miðað við sama tímabil fyrir ári. Annan ársfjórðunginn í röð náði fyrirtækið langtíma EBIT markmiði sínu sem er 10‐12% af tekjum. Búist er við að sumarleyfistíminn, þegar venjulega er minna um viðskipti en á öðrum árstímum, setji mark sitt á afkomu þriðja ársfjórðungs. Engu að síður reiknar Marel fyllilega með að ná EBIT markmiði sínu um 10‐12% af veltu fyrir árið í heild.

Lesa fréttatilkynningu í heild sinni

Frekari upplýsingar veita:

Erik Kaman, fjármálastjóri
Sími: 563 8072

Sigsteinn Grétarsson, forstjóri Marel ehf.,
Sími: 563 8072

Fyrri


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of 60 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0