Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Um Marel

Upplýsingar

Marel Iceland ehf
Austurhrauni 9
210 Garðabær

Kennitala: 640707-0540

Skrifstofan er opin virka daga frá 8-17.

Sími: 563-8000
Fax: 563-8001
Netfang: info.is@marel.com


Fyrirtækjabæklingur

Sækja bækling (2,2 MB)

 

Í fararbroddi á heimsvísu í fiski, kjöti og kjúklingi

Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Marel er alþjóðlegt fyrirtæki og hjá því starfa yfir 4.000 manns um allan heim. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.

Hjá Marel finnurðu allt sem þú þarft á einum stað. Eftir kaup á nokkrum framúrskarandi fyrirtækjum á undanförnum árum býður Marel upp á heimsþekkt vörumerki á borð við Stork Poultry Processing og Townsend Further Processing. Vöruframboð fyrirtækisins spannar allt framleiðsluferlið, frá frumvinnslu hráefnis til pökkunar í neytendaumbúðir.

Marel býður upp á mikið úrval háþróaðra tækja og hugbúnaðar, þar á meðal vogir, flokkara, skurðarvélar, sagir, eftirlitsbúnað, beintínsluvélar, frysta, pökkunar- og merkingarvélar, svo eitthvað sé nefnt. Þá býður fyrirtækið upp á samþætt heildarkerfi sem henta á öllum helstu sviðum matvælavinnslu ásamt lausnum sem eru sérsniðnar að þörfum viðskiptavina.

Með stöðuga nýsköpun að leiðarljósi hefur Marel umbreyst úr sprotafyrirtæki í heimsleiðtoga á sínu sviði. Fyrirtækið leggur að meðaltali 5-6% af veltu í rannsóknar- og þróunarstarf á ári hverju, sem er hæsta hlutfall sem fyrirfinnst í greininni. Framsæknar tækja- og hugbúnaðarlausnir frá Marel gera framleiðendur kleift að hámarkað nýtingu, afköst og arðsemi.

Frá upphafi hefur Marel lagt sérstaka áherslu á gæði og áreiðanleika, en árið 1997 fékk fyrirtækið ISO 9001 vottun á gæðakerfi sínu fyrir vöruþróun, sölu, framleiðslu og þjónustu við viðskiptavini.

Sjá einnig:

Aðal heimasíðu Marel

Fjárfestatengsl (á ensku)



Please note: The information on this site and its use are subject to a Legal Notice. This site uses Cookies which are further detailed in that notice.

Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.